Brendan Rodgers, stjóri Leicester, segir að betra liðið hafi unnið í kvöld, en lið hans tapaði fyrir Newcastle, 2-0, í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins á St. James' Park.
Newcastle óð í færum í fyrri hálfleik en það vantaði þó eitthvað upp á til að koma boltanum í netið.
Liðið nýtti sér hálfleikinn til að fara yfir hlutina og í þeim síðari skoruðu þeir Dan Burn og Joelinton mörkin sem komu Newcastle áfram.
Leicester fékk nokkur ágætis færi í leiknum en sigur Newcastle þó verðskuldaður.
„Betra liðið vann. Við erum vonsviknir með mörkin sem við fengum á okkur. Við gáfum tvö ódýr mörk og svo vantaði gæði í okkar spili ef ég á að vera hreinskilinn, en leikmennirnir gáfu samt sem áður allt í þetta.“
„Við fengum nokkur færi í leiknum og það voru góð færi sem við hefðum getað skorað úr en það er erfitt ef þú nýtir þau ekki,“ sagði Rodgers.
Athugasemdir