Jamie Carragher gagnrýndi Maurizio Sarri harkalega meðan Chelsea fékk hvert markið fætur öðru á sig gegn Manchester City í dag.
Chelsea endaði á að tapa leiknum 6-0 og sagði Carragher frammistöðu liðsins minna sig á Arsenal undir stjórn Arsene Wenger.
„City er að eiga stórleik en þetta er það versta sem við höfum séð frá Chelsea á tímabilinu," sagði Carragher í hálfleik á Sky Sports.
„Sarri er bara hálfnaður á sínu fyrsta tímabili en það lítur út fyrir að hann hafi breytt Chelsea í Arsenal. Þetta minnir óneitanlega á gengi Arsenal á erfiðum útivöllum síðustu sjö eða átta ár.
„Þetta lið lítur út fyrir að vera veikburða. Það er eitthvað sem ég hef ekki getað sagt um Chelsea áður."
Chelsea fór niðurfyrir Arsenal á markatölu með tapinu.
Athugasemdir