Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 10. febrúar 2021 15:04
Elvar Geir Magnússon
Kvennalandsliðið ekki til Frakklands
Þorsteinn Halldórsson.
Þorsteinn Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ákveðið hefur verið að A landslið kvenna taki ekki þátt í fyrirhuguðu æfingamóti í Frakklandi (Tournoi de France) sem fara á fram dagana 17.-23. febrúar.

Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Ákvörðunin er tekin í ljósi stöðunnar í Evrópu gagnvart COVID-19.

Ísland átti að mæta Frakklandi, Sviss og Noregi í mótinu, en í byrjun vikunnar gaf Noregur það út að liðið hefði dregið sig úr keppni af sóttvarnarástæðum.

Þetta áttu að vera fyrstu leikir kvennalandsliðsins undir stjórn Þorsteins Halldórssonar.

Næstu verkefni A kvenna eru því vináttuleikir í apríl, en landsleikjagluggi er dagana 5.-13. apríl.
Athugasemdir
banner
banner