Fotbolti.net
10.03.19 - 19:37
Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára: Vorum í einhverjum krummafót

Auglýsing
Margrét Lára í leiknum í dag.

Margrét Lára í leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>„Það var gott að vinna en þetta var erfiður leikur því Þór/KA er með frábært og vel skipulagt lið,"</i> sagði Margrét Lára Viðarsdóttir sem kom inná sem varamaður og lagði upp sigurmark Vals gegn Þór/KA í Lengjubikar kvenna í kvöld
„Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn og fær á báða bóga en mér fannst við yfir allan leikinn. Þær fóru svo að sækja mark í seinni hálfleik og það opnaðist þá fyrir okkur. Við hefðum getað sett fleiri en við vorum í einhverjum krummafót fyrir framan markið."

Margrét Lára var frá keppni allt síðasta tímabil eftir að hafa slitið krossband í hittifyrra og átt sitt annað barn líka í millitíðinni.

„Það er æðislegt að vera komin til baka og ég er bara að njóta hvers augnabliks og hverrar mínútu. Maður veit aldrei hvenær þetta er tekið frá manni og þá lærir maður að meta þetta og ég kann vel að meta þetta í dag."

Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu að ofan. Hún ræðir þá endurkomuna í landsliðið og framtíðina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.