Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. mars 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eyjólfur Vilberg ráðinn framkvæmdastjóri ÍA
Mynd: ÍA Facebook

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍA og tekur hann við starfinu af Geir Þorsteinssyni.


„Eyjólfur hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála en hann hefur komið að knattspyrnuþjálfun yngri flokka og hefur verið að sækja réttindi sem þjálfari." segir í tilkynningu frá ÍA.

Tilkynningin frá ÍA:

„Eyjólfur starfaði sem sparisjóðsstjóri Suður- Þingeyinga fram undir síðari hluta síðasta árs. Hann þekkir vel til Vesturlands þar sem hann bjó á Hvanneyri og starfaði bæði sem svæðis- og útibússtjóri og forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá Arion banka í Borgarnesi á árunum 2009 – 2019."

„Hann og hefur einnig verið í eigin rekstri hjá félagi sínu Krosshús ehf, við ráðgjöf til fyrirtækja um fjármál og fjárfestingar, ásamt sölu og ráðgjöf vegna fasteignaviðskipta."

„Eyjólfur er með M.Sc. gráðu í fjárfestingarstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík (2009) auk menntunar í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands (2002). Hann hefur auk þess lokið námi til löggildingar fasteigna- og skipasala, skipstjórnarprófi og réttinda vélavarðar smábáta til viðbótar við réttindi til knattspyrnuþjálfunar."


Athugasemdir
banner
banner