Fotbolti.net
10.03.25 - 18:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp sá eftir því að hafa ekki fengið Mane fyrr - „Hálfvitinn þinn"

Jurgen Klopp og Sadio Mane

Jurgen Klopp og Sadio Mane

Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp, fyrrum stjóri Dortmund og Liverpool, sagði frá því á viðburði á dögunum að hann hafi séð gríðarlega mikið eftir því að hafa ekki fengið þrjá leikmenn til Dortmund sem hafa blómstrað í úrvalsdeildinni.

Einn þeirra er Sadio Mane sem Klopp fékk til sín til Liverpool og þeir ensku deildina og Meistaradeildina saman.
„Ég verð að biðja Dortmund stuðningsmanninn afsökunar sem er hérna því ég keypti ekki Sadio Mane til félagsins. Ég gæti sagt að ég hafi verið ungur og barnalegur þá en ég var ekki svo ungur og ekki það barnalegur," sagði Klopp.

„Ég áttaði mig á því þegar við fengum hann til Liverpool 'Þetta er mikill peningur fyrir leikmann sem ég hefði getað fengið fyrir nokkrum árum fyrir mikið minna."

Það voru tveir aðrir leikmenn sem hann mætti sem voru undir smásjá Dortmund á sínum tíma.

„Ég hefði getað fengið Son sem var hjá Hamburg þá. Þegar ég mætti honum í úrvalsdeildinni hugsaði ég 'Guð minn góður hálfvitinn þinn'. Við vorum nálægt því að fá Kevin de Bruyne svo valtaði hann yfir okkur í bikarúrslitum með Wolfsburg svo það var tvöfaldur mínus."

„Það er ekki rökrétt að sjá eftir hlutum en maður gerði sitt besta og verður að takast á við það."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.