Dean Smith stýrir Leicester út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Leicester City

Mynd: Leicester City
Leicester City staðfesti í kvöld ráðninguna á Dean Smith en hann mun stýra liðinu út tímabilið.
Brendan Rodgers var rekinn frá Leicester á dögunum eftir slakan árangur í deild.
Leicester fór í viðræður við Jesse Marsch en bandaríski þjálfarinn hafði ekki áhuga á verkefninu og var því ákveðið að hafa samband við Smith.
Smith og Leicester komust að samkomulagi og gerði hann samning út tímabilið.
Smith stýrði síðast Norwich í ensku B-deildinni en þar áður gerði hann ágætis hluti með Aston Villa.
Craig Shakespeare og John Terry verða aðstoðarmenn Smith hjá Leicester sem situr í 19. sæti með 25 stig.

We are pleased to announce the appointment of Dean Smith as the Club’s First Team Manager until the end of the 22/23 season ????
— Leicester City (@LCFC) April 10, 2023