Fotbolti.net
10.04.23 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Get lofað því að við hefðum ekki tapað 3-0 með hann í hjartanu"

Damir Muminovic.

Damir Muminovic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Damir Muminovic er búinn að sanna sig sem einn allra besti miðvörður Bestu deildarinnar, ef bara ekki sá besti.

Damir var algjörlega frábær í fyrra þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari með miklum yfirburðum. Damir og Viktor Örn Margeirsson mynduðu öflugt teymi í vörninni hjá Blikum.
Kristján Óli Sigurðsson, Höfðinginn, var gestur í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net í síðustu viku þar sem hann fór yfir stöðu mála hjá Breiðabliki en þar hrósaði hann Damir í hástert.

„Ég hefði viljað nota hann í landsleiknum í Bosníu um daginn," sagði Kristján Óli þegar hann talaði um Damir.

„Ég skil það ekki þegar við vorum ekki með hafsenta. Af hverju ekki að setja svona stríðsmann í liðið? Ég get lofað þér því að við hefðum ekki tapað 3-0 með hann í hjartanu."

Damir lifir fyrir andrúmsloft eins og var Bosníu. „Hann elskar það og þrífst í svona andrúmslofti," sagði Kristján Óli.

Hægt er að hlusta á Niðurtalninguna í heild sinni hér fyrir neðan en Breiðablik mætir HK í fyrsta leik í kvöl.d

<b>Niðurtalningin</b> - Höfðinginn fer yfir stöðuna hjá Íslandsmeisturunum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.