Fotbolti.net
10.04.23 - 20:36
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin hjá Jóa Berg - Kominn með tvö eftir að hafa komið inn af bekknum

Sjáðu mörkin hjá Jóa Berg - Kominn með tvö eftir að hafa komið inn af bekknum
Canon

Mynd: Getty Images

Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er búinn að skora bæði mörk Burnley gegn Sheffield United í ensku B-deildinni, en staðan er 2-0.
Jóhann Berg byrjaði á bekknum í dag en var skipt inn á í hálfleik og var hann ekki lengi að láta að sér kveða.

Hann braut ísinn á 60. mínútu með þrumuskoti eftir að boltinn datt fyrir hann í teignum og tíu mínútum síðar skoraði hann ekkert ósvipað fyrra markinu. Aftur datt boltinn í teignum og skaut hann boltanum í hægra hornið.

Lagleg innkoma hjá Blikanum.

Sjáðu fyrra markið

Sjáðu seinna markið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.