Fotbolti.net
10.05.18 - 19:59
Ester Ósk Árnadóttir

Jóhannes Karl: Menn eru tilbúnir að leggja sig fram fyrir hvern annan

Auglýsing
Jóhannes Karl: Menn eru tilbúnir að leggja sig fram fyrir hvern annan
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var ágætur leikur af okkar hálfu en við vissum að við værum að mæta feikna sterku Þórsliði þannig að við ákváðum að mæta vel gíraðir til leiks og vera klárir í alvöru slag hérna,“ sagði Jóhannes Karl þjálfari ÍA eftir sigur á móti Þór.
Þór gaf ekki mikill færi á sér í leiknum.



„Það er rosalega erfitt að koma og spila á móti Þórsurum. Þeir eru með gott lið og hörkunaglar. Við náum að skapa okkur þetta færi og skorum mark. Í svona jöfnum og spennandi leik þá er það, það sem skiptir sköpum.“



Þórsarar pressuðu ÍA stíft í síðari hálfleik.



„Þórsarari hefðu í raun og veru, á vissan hátt átt skilið að jafna. En við vörðumst alveg til síðasta manns og við ætluðum ekki að gefa þeim mark. Þeir náttúrulega héldu áfram og pressuðu okkur stíft í seinni hálfleiknum. Mínir strákar sýndu mikinn karakter í að stoppa þá.“



ÍA er með tvo sigra í tveimur leikjum.



„Það er náttúrlega bara það sem við erum að leggja upp með, að fara inn í hvern einasta leik til þess að reyna að vinna. Ég er fyrst og fremst ánægður með grunninn á liðinu og liðsheildin, menn eru tilbúnir að leggja sig fram fyrir hvern annan og það skiptir okkur gríðarlega miklu máli.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.