Fotbolti.net
10.05.19 - 22:35
Magnús Þór Jónsson

Rúnar: Gríðarlega mikilvægur sigur

Auglýsing
Rúnar: Gríðarlega mikilvægur sigur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson gat brosað í leikslok eftir sigur á HK á Samsungvellinum í kvöld.



"Þetta var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur, mér fannst við spila ágætlega í dag.  Við fengum frábærar sóknir og frábæra möguleika til að skora en náðum þó ekki að nýta það.  Svo þarf einhverja sleggju frá Hilmari til þess að við skorum, frábært mark sem hann átti svo sannarlega skilið að fá!"
Mark Hilmars var fyrsta mark Stjörnunnar úr opnu spili í PepsiMax-deildinni, eftir slaka færanýtingu í fyrri hálfleik var Rúnar að verða stressaður með þann þátt?



"Neinei, maður er náttúrulega alltaf pirraður þegar færin eru ekki nýtt.  Við höfum trú á því að við náum að skora, hvort sem það er úr vítaspyrnum eða úr opnu spili.  Við erum með gott sóknarlið."



Sigurinn í dag þýðir að bilið í efstu liðin er ekki stórt, skipti ekki máli að halda í við þau lið sem eru að setjast að við toppinn í deildinni?



"Já það er alveg mikilvægt.  Það eru samt bara þrír leikir búnir og við erum taplausir eins og er, vonandi höldum við því bara áfram."



Nánar er rætt við Rúnar í viðtalinu sem fylgir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.