Villas-Boas þarf fjárhagslegan stuðning til að halda áfram
Mynd:
Getty Images
Portúgalski stjórinn Andre Villas-Boas er eftirsóttur um þessar mundir eftir að hafa gert frábæra hluti með Marseille á tímabilinu.
Newcastle, sem gæti verið komið í eigu ríkustu eigenda knattspyrnufélags á heimsvísu í sumar, er talið hafa áhuga á stjóranum ef eigendaskiptin ganga í gegn.
Franska deildartímabilinu er lokið og náði Marseille óvænt að enda í öðru sæti. Villas-Boas segist vilja vera áfram hjá Marseille ef hann fær viðeigandi stuðning fjárhagslega til að gera liðið samkeppnishæft í Meistaradeildinni.
„Mér líður vel hjá Marseille og ég vil ekki skoða önnur félög. Ég hlakka til að spila í Meistaradeildinni með Marseille, en fyrst vil ég fá tryggingu um fjárhagslegan stuðning. Ef ég fæ ekki stuðning til að skila góðu starfi þá er þetta ekki þess virði. Mér finnst eðlilegt fyrir þjálfara að spyrja svona spurninga og ég býst við að stjórnendur verði tilbúnir með svör," sagði Villas-Boas meðal annars í yfirlýsingu á Instagram.
„Ég er ennþá sami maður með sama metnað sem þekkir engin takmörk. Eftir nokkra mánuði verð ég í Dakar eyðimörkinni frekar en hjá úrvalsdeildarfélagi. Ég á enn eftir að uppgötva Japan. Ég vil kynnast japanskri menningu og japönskum fótbolta."
Villas-Boas, sem keppir í árlega Dakar rallýinu, hefur áður stýrt Chelsea og Tottenham í enska boltanum.
Villas-Boas er 42 ára gamall og hefur unnið titla með Porto og Zenit á þjálfaraferlinum.