Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 10. maí 2021 18:50
Brynjar Ingi Erluson
Camavinga ánægður að heyra af áhuga frá Bayern og Real Madrid
Eduardo Camavinga er mikið efni
Eduardo Camavinga er mikið efni
Mynd: Getty Images
Franska undrabarnið Eduardo Camavinga er í skýjunum með það að heyra að Bayern München og Real Madrid hafi áhuga á að fá hann í sumar.

Camavinga er að eins 18 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað 80 leiki fyrir aðallið Rennes.

Hann er þá yngsti leikmaðurinn í sögu franska landsliðsins en hann kom við sögu í 4-2 sigri á Króötum í september á síðasta ári. Þá skoraði hann fyrsta landsliðsmarkið mánuði síðar gegn Úkraínu.

Real Madrid hefur fylgst með Camavinga í einhvern tíma og þá hefur Bayern einnig áhuga á að fá hann í sumar.

„Maður er í skýjunum með að lið eins og Real Madrid og Bayern sýna áhuga. Ég ætla samt ekki að ljúga neinu en ég hef ekkert getað rætt þessa hluti við fjölskylduna," sagði Camavinga við Telefoot.
Athugasemdir
banner
banner
banner