Takumi Minamino á framtíð fyrir sér hjá Liverpool miðað við orð Jurgen Klopp í gær eftir leik við Southampton í deildinni.
Liverpool vann leikinn 2-0 á heimavelli en Minamino var ekki með Southampton þar sem hann er lánsmaður frá einmitt Liverpool.
Japaninn var lánaður til Southampton í janúar en það er ekki til lengdar samkvæmt Klopp sem telur hann vera mikilvægan leikmann.
„Þegar við leyfðum honum að fara í janúar þá var það erfið ákvörðun því hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur og verður aftur í framtíðinni án efa," sagði Klopp.
„Tækifærin voru af skornum skammti á þessum tíma og þess vegna var vit í því fyrir hann og okkur að leyfa honum að spila annars staðar."
„Southampton var fullkominn staður fyrir hann vegna hvernig þeir spila og hvað Ralph Hasenhuttl heimtar frá leikmönnum."
Athugasemdir