Ísland mætir Hollandi í vináttulandsleik í Hollandi í kvöld en byrjunarlið Íslands hefur vakið athygli.
Valgeir Lunddal Friðriksson kemur inn í liðið fyrir Daníel Leó Grétarsson. Valgeiri er stillt upp í miðverðinum en hann er bakvörður að uppruna.
Valgeir var kallaður inn í landsliðshópinn ásamt Loga Tómassyni eftir að Hlynur Freyr Karlsson og Mikael Egill Ellertsson meiddust en miðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason var þegar í hópnum.
Kári Árnason sérfræðingur á Stöð 2 Sport furðar sig á liðsvalinu í kvöld
„Ég var að lofsyngja Valgeir Lunddal í síðasta leik en mér finnst rosalega skrítið að hann sé tekinn inn í seinni bylgjunni. Þeir eru með hafsent sem er heill. Ef Brynjar er klár, af hverju valdiru þá ekki Valgeir á undan í hópinn?" sagði Kári í upphitun Stöðvar 2 Sport fyrir leikinn.
Davíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari landsliðsins sagði frá því í viðtali við Stöð 2 Sport að Valgeir hafi verið tekinn inn sem miðvörður og hafi hreinlega verið valinn framyfir Brynjar í dag.