Byrjunarlið Aftureldingar og Stjörnunnar: Emil og Andri saman


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur Aftureldingar og Stjörnunnar fer fram í Mosfellsbænum í kvöld í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla og byrjunarliðin eru komin inn.
Magnús Már gerir tvær breytingar á sínu liði eftir 2-1 tapið gegn HK í Lengjudeildinni. Þeir Axel Óskar Andrésson og Joacim Holtan koma inn í liðið fyrir Trausta Þráinsson og Enes Þór Enesson Cogic. Elmar Cogic er á meiðslalistanum.
Jökull Elísabetarson gerir einnig tvær breytingar en þeir Haukur Örn Brink og Andri Rúnar koma inn í lið Stjörnunnar en Jóhann Árni Gunnarsson og Daníel Finns koma út þar sem þeir taka báðir út leikbann í dag. Emil Atlason og Andri Rúnar Bjarnason eru saman frammi.
Byrjunarlið Afturelding
Arnar Daði Jóhannesson, Birkir Már Sævarsson, Axel Óskar Andrésson, Gunnar Bergmann Sigmarsson, Jón Vignir Pétursson, Aron Elí Sævarsson (fyrirliði), Bart Kooistra, Joacim Emil Godhei Holtan, Óðinn Bjarkason, Bjartur Bjarmi Barkarson, Andi Hoti
Byrjunarlið Stjarnan
Árni Snær Ólafsson, Heiðar Ægisson, Guðmundur Kristjánsson (fyrirliði), Sindri Þór Ingimarsson, Birnir Snær Ingason, Haukur Örn Brink, Guðmundur Baldvin Nökkvason, Emil Atlason (fyrirliði), Damil Serena Dankerlui, Örvar Logi Örvarsson, Andri Rúnar Bjarnason




