„Ég ætla bara að vera hreinskilin, ég veit ekki hvernig þetta umspil virkar og ég skil þetta ekki alveg," sagði landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir eftir 1-6 tap gegn Spáni í gærkvöldi.
Við skulum því fara aðeins yfir þetta.
Við skulum því fara aðeins yfir þetta.
Hvernig virkar umspilið
Ísland endaði í þriðja sætinu í riðli sínum í undankeppni HM, á eftir Spáni og Englandi en á undan Úkraínu. Sigurvegari riðilsins fer beint á HM en hin þrjú liðin fara í umspil. Þar sem öll liðin í riðlinum eru í A-deild Þjóðadeildarinnar höfðu þau tryggt sér sæti í umspilinu áður en undankeppnin hófst.
En með því að enda í þriðja sæti jukust möguleikar Íslands á að komast á HM til muna. Liðin sem enda í öðru eða þriðja sæti í A-deildar riðlunum í undankeppninni fara nefnilega í svokallaða leið eitt í umspilinu og mæta þar liðum úr C-deild í fyrstu umferð. Lið sem enda neðst í riðlinum fara hins vegar í leið tvö og mæta liðum úr B-deild.
Sextán lið komast áfram úr fyrstu umferð umspilsins og mætast síðan í annarri umferð, þar sem lið úr leið eitt dragast gegn liðum úr leið tvö. Að lokum standa átta sigurvegarar eftir. Sjö þeirra komast beint á HM á grundvelli árangurs í undankeppninni, en það lið sem er með slakastan árangur fer í alþjóðlegt umspil gegn þjóðum frá öðrum heimsálfum.
Leikið er heima og að heiman en fyrri hluti umspilsins fer fram í október og seinni hluti umspilsins fer fram í nóvember og desember.
Hvaða liðum getur Ísland mætt?
Í fyrri hluta umspilsins getur Ísland mætt átta mismunandi liðum úr C-deild. Það eru:
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Hvíta-Rússland
Kosóvó
Litháen
Króatía
Kasakstan
Ísland á fyrirfram að vinna öll þessi lið frekar þægilega í tveggja leikja einvígi. Ef Ísland fer áfram úr fyrra einvíginu þá mætum við einhverju af þessum 16 liðum:
Slóvenía
Pólland
Serbía
Úkraína
Sviss
Portúgal
Skotland
Wales
Finnland
Belgía
Tyrkland
Tékkland
Albanía
Norður-Írland
Slóvakía
Ísrael
Sum af þessum liðum eru flóknir andstæðingar en allt eru þetta lið sem Ísland á að geta unnið í tveggja leikja einvígi. Það verður dregið 18. júní næstkomandi. Ísland mun spila seinni leikinn á útivelli í báðum einvígum.
Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei komist á HM en núna er svo sannarlega möguleiki til þess að skrifa söguna.




