Jón Vignir Pétursson gekk í raðir Aftureldingar í vetur, kom frá uppeldisfélaginu Selfoss. Hann er enn að vinna sig til baka í 100% form eftir að hafa meiðst illa síðasta sumar, en hefur byrjað alla leiki liðsins til þessa á tímabilinu.
Fótbolti.net ræddi við miðjumanninn í aðdraganda bikarleiksins gegn Stjörnunni í kvöld. Leikurinn, sem er liður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins, hefst klukkan 19:30 og fer fram á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
Fótbolti.net ræddi við miðjumanninn í aðdraganda bikarleiksins gegn Stjörnunni í kvöld. Leikurinn, sem er liður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins, hefst klukkan 19:30 og fer fram á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
„Leikurinn leggst mjög vel í mig og okkur, langt síðan við vissum af þessum leik og fínt að það sé komið að þessu. Ég býst bara við hörkuleik og við þurfum að halda áfram að gera það sem við erum búnir að vera gera upp á síðkastið og bæta í til þess að ná í úrslitin sem við ætlum okkur."
Stjarnan er heilt yfir mjög gott lið og við þurfum að koma í veg fyrir ýmsa hluti hjá þeim og stoppa þá í sinum aðgerðum, ekkert eitt sem þarf að stoppa meira en annað en verður farið yfir það á æfingu í dag eflaust," sagði Jón Vignir fyrir æfingu gærdagsins.
Hvernig hafa fyrstu mánuðirnir í Mosó verið?
„Þeir hafa bara verið mjög góðir, hópurinn frábær og það hefur hjálpað manni að komast inn í allt. Ég kom til liðsins meiddur og er ennþá að ná fyrri styrk, en allir í kringum klúbbinn eru klárir í að hjálpa og ég fæ góðan skilning þegar þörf er á."
„Gengið hefur bara verið fínt, við fórum á gott skrið í deildinni sem og í bikar og erum bara sáttir með þessa byrjun, fyrir utan fyrstu tvo leikina í deild vissulega. Þetta er búið að vera bara flott upp á síðkastið og ætlum við að halda þessu áfram og bæta í til að ná markmiðunum."
En af hverju valdi Jón Vignir Aftureldingu?
„Það eru nokkrar ástæður fyrir því að ég valdi að semja við Aftureldingu. Strax eftir spjöllin sem ég átti við þjálfarana og stjórn, leist mér vel á verkefnið og metnaðinn í að komast aftur upp um deild og almennt markmiðin sem voru lögð fyrir. Ég hafði heyrt af áhuga frá þeim áður og fannst það kostur þegar ég var í ferlinu að velja klúbb."
„Það sem heillaði hvað mest við félagið var eins og ég sagði áðan bara metnaðurinn og kannski klassískt svar, en tilfinningin var bara góð eftir samtölin og hlutverkið sem Maggi og Enes sáu mig í. Leikstíllinn hentar mér líka vel og mér finnst þetta vel samsettur hópur hjá Magga sem ég sá mig fitta vel í."
„Ég kannaðist líka við nokkra í liðinu í gegnum námið og annað sem gerði ákvörðunina líka auðveldari eftir að hafa heyrt þeirra hlið á því sem er í gangi í Mosfellsbænum. Það var gott að geta leitað í þá þegar hausinn var á miljón í að taka ákvörðun og er ég sáttur með ákvörðunina."
Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?
„Það hefur verið góð mæting og góð stemning á síðustu leiki í Mosó þannig ég hvet fólk bara til þess að mæta eins og það hefur verið að gera, stuðningurinn skilar sér klárlega inn á völlinn og til okkar," segir Jón Vignir að lokum.




