Afturelding tekur í kvöld á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikurinn hefst klukkan 19:30 á Malbikstöðinni að Varmá.
Fótbolti.net ræddi við Magnús Má Einarsson, þjálfara Aftureldingar, fyrir æfingu liðsins í gær.
Fótbolti.net ræddi við Magnús Má Einarsson, þjálfara Aftureldingar, fyrir æfingu liðsins í gær.
„Það er mikil spenna í Mosfellsbæ fyrir þessum leik. Afturelding komst í fyrsta skipti í sögunni í 8-liða úrslit í bikarkeppninni í fyrra og núna erum við á sama stað. Við viljum komast ennþá lengra og til þess þurfum við að eiga góðan leik gegn öflugu og vel mönnuðu liði Stjörnunnar. Ég vonast líka eftir að stuðningsmenn Aftureldingar verði í stuði á morgun (í kvöld) og hjálpi okkur að nýta heimavöllinn sem allra best í þessari viðureign," segir Maggi.
Ætlum að sýna betri frammistöðu
Hvað þurfið þið að gera til að ná í jákvæð úrslit?
„Við þurfum að spila af mikilli gleði og njóta þess að spila þennan stóra leik. Trúin og liðsheildin í hópnum er frábær og það þarf að skína í gegn. Við þurfum að vera hugrakkir og spila eins og við höfum gert þegar við höfum verið upp á okkar besta í sumar.”
Er eitthvað sérstakt sem þarf að stoppa?
„Stjarnan er með marga öfluga leikmenn og við þurfum að stoppa þeirra styrkleika. Fyrst og fremst þurfum við samt að halda í okkar gildi og okkar spilamennsku og sýna okkar bestu hliðar fyrir framan fólkið okkar í Mosfellsbæ.”
Eitthvað sem þarf að laga frá tapleiknum gegn HK á föstudag?
„Já, það er eitt og annað sem við getum gert betur en í þeim leik. Við erum búnir að fara yfir það og ætlum að sýna betri frammistöðu á morgun (í kvöld)."
Eru komnir á fjórða borð
Truflar það eitthvað taktinn í deildinni að vera komnir þetta langt í bikarnum?
„Alls ekki. Bikarinn er mjög skemmtileg keppni sem við viljum komast sem lengst í. Við hófum leik í bikarnum í mars þegar allt var á kafi í snjó og svo höfum við fengið einn bikarleik á mánuði síðan þá. Ef við myndum horfa á þetta sem tölvuleik þá erum við búnir að ná að klára þrjú borð og erum núna einu borði frá því að komast í næstsíðasta borðið. Það er markmiðið."
Hvernig er staðan á hópnum? Geta bræðurnir Elmar Kári og Enes tekið þátt? Það vakti athygli að Joacim Holtan kom ekki við sögu gegn HK, er hann klár?
„Staðan á hópnum er góð. Við höfum verið að endurheimta menn úr meiðslum. Elmar, Enes og Joacim hafa allir verið að glíma við smávægileg meiðsli en við tökum stöðuna á æfingu í dag og sjáum hverjir af þeim geta spilað á morgun," sagði Maggi í gær.
Frábær upphitun í Hlégarði
Ertu með einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?
„Afturelding á bestu stuðningsmenn landsins þegar þeir eru á deginum sínum. Við höfum upplifað mörg skemmtileg kvöld á Malbikstöðinni að Varmá undanfarin ár og eftirminnilegustu sigurleikirnir hafa alltaf komið þegar stuðningsmennirnir eru í stuði. Ég hvet alla Mosfellinga til að mæta á leikinn og hjálpa strákunum í baráttunni um sæti í undanúrslitum."
„Það verður frábær upphitun í Hlégarði fyrir stuðningsmenn beggja liða frá klukkan 18:00. Ísfugl mun gefa kjúklingaleggi og tveir dáðustu synir Mývatnssveitarinnar mætast í pallborðsumræðum, þeir Baldvin Jón Hallgrímsson og Baldur Sigurðsson. Báðir goðsagnir hjá sitthvoru liðinu og ég veit að það verða sætaferðir bæði úr Mývatnssveit og víðar til að upplifa þennan viðburð. Sjáumst á vellinum," segir Maggi.




