Liðsstjórar íslenska landsliðsins féllu heldur betur í kramið hjá landsliðskonum Íslands þegar liðið æfði á Laugardalsvell í gær því í þetta sinn var boðið upp á nammi.
Vaninn er að boðið sé upp á orkudrykki á borði við völlinn þegar liðið æfir en að þessu sinni var diskur með konfektmolum.
Alexandra Jóhannsdóttir var fyrst til að átta sig og gæddi sér á molunum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Ísland og Þýskalands mætast í undankeppni EM 2025 á föstudaginn klukkan 16:15 á Laugardalsvelli. Í kjölfarið fer liðið út til Póllands og mætir heimakonum. Sæti á EM er í boði í þessu verkefni.
Athugasemdir