Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 10. ágúst 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Gary O'Neil ráðinn til Liverpool (Staðfest)
Gary O'Neil í leik með West Ham.
Gary O'Neil í leik með West Ham.
Mynd: Getty Images
Gary O'Neil hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá U23 ára liði Liverpool.

Hinn 37 ára gamli O'Neil var leikmaður tímabilsins hjá Bolton tímabilið 2018/2019 en hann varð síðan að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla á hásin.

O'Neil er með UEFA Pro þjálfararéttindi en hann spilaði á ferli sínum með liðum eins og Portsmouth, Middlesbrough og West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

O'Neil verður nú aðstoðarmaður Barry Lewtas með U23 ára lið Liverpool.

„Þegar Liverpool talar við þig um starf þá segir þú já," sagði O'Neil eftir undirskriftina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner