Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. ágúst 2020 11:00
Elvar Geir Magnússon
Pedro búinn að yfirgefa Chelsea - Er þakklátur
Mynd: Getty Images
Pedro hefur formlega yfirgefið Chelsea eftir fimm ára veru hjá félaginu.

þessi 33 ára spænski sóknarleikmaður varð Englandsmeistari með Chelsea 2017, vann FA bikarinn tvívegis og Evrópudeildina í fyrra.

Hann var varaskeifa á liðnu tímabili í ensku úrvalsdeildinni og skoraði aðeins eitt mark í ellefu leikjum.

„Eftir fimm yndisleg ár tekur vera mín hjá Chelsea nú enda. Ég er þakklátur stjórn félagsins, þjálfurum og liðsfélögum sem ég hef haft. Og auðvitað stuðningsmönnum," skrifaði Pedro á Instagram.

Ekki er vitað hvert næsta skref Pedro á ferlinum verður.


Athugasemdir
banner
banner
banner