10.08.21 - 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Tanis eftir tapið: Versti dómari í heimi

Mynd: Hanna Símonardóttir

Mynd: Hanna Símonardóttir

Afturelding tapaði gegn Kórdrengjum er liðin mættust í Lengjudeildinni fyrr í kvöld og er Tanis Marcellán, markvörður Aftureldingar, allt annað en sáttur með dómara leiksins.
Axel Freyr Harðarson gerði sigurmark leiksins á 71. mínútu í kjölfar hornspyrnu. Tanis kýldi hornspyrnuna frá og fékk leikmann Kórdrengja harkalega í sig og féll til jarðar. Axel nýtti tækifærið og skoraði í autt mark með sporðdrekasparki.
Tanis og liðsfélagar hans kvörtuðu og vildu fá dæmda aukaspyrnu en Gunnar Oddur Hafliðason dómari dæmdi mark.
Eftir leik var birt myndband af atvikinu á Twitter. „Versti dómari í heimi," skrifaði Tanis í athugasemd við myndbandið og bætti við tjákni af kúk.
Lestu um leikinn

the worst referee in the world 💩
— Tanis Marcellán ⚽✨ (@tanismarcellan) August 10, 2021
Hvernig i andskotanum er þetta ekki aukaspyrna? @Fotboltinet @footballiceland @hjorvarhaflida pic.twitter.com/zq2nOKu4jf
— Óðinn Líndal (@OdinnLindal5) August 10, 2021