Haraldur Freyr stýrir Keflavík út tímabilið (Staðfest)

Haraldur Freyr Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Freyr Guðmundsson mun stýra Keflavík út tímabilið í Bestu deild karla. Luka Jagacic, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, verður honum til aðstoðar.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er hættur sem þjálfari en hans síðasti leikur var 3-1 tapið gegn HK í gær.
Áður hafði verið tilkynnt að Sigurður myndi stíga frá borði eftir tímabilið en í tilkynningu Keflavíkur er sagt að ákvörðun hafi verið tekin af stjórninni í dag að flýta því ferli og Sigurður var látinn fara.

Haraldur var aðstoðarmaður Sigurðar en hann er auk þess fyrrum fyrirliði Keflavíkur og þá er hann fyrrum þjálfari Reynis í Sandgerði.
Keflavík er á botni Bestu deildarinnar með tíu stig, sjö stigum frá öruggu sæti.
Yfirlýsing Keflavíkur:
Stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur hefur ákveðið að Sigurður Ragnar Eyjólfsson láti af störfum sem þjálfari karlaliðs Keflavíkur. Ákvörðun var tekin í dag og Sigurði tilkynnt um starfslok. Haraldur Guðmundsson mun taka við liðinu.
Stjórn knattspyrnudeildar Keflavikur þakkar Sigurði fyrir samstarfið undanfarin ár og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

Sigurður og Haraldur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð