Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 10. september 2020 22:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikar karla: Úrslitaleikir fyrir ekki svo löngu
Úr úrslitaleik ÍBV og FH 2017.
Úr úrslitaleik ÍBV og FH 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rétt eins og í Mjólkurbikar kvenna þá var dregið í undanúrslitin í Mjólkurbikar karla í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld.

Þar sem leikið er eins seint og gert er í ár þá verður leikið á hlutlausum völlum þar sem fljóðljós eru.

Í undanúrslitum mætast ÍBV og FH annars vegar og Valur og KR hins vegar. Þessi einvígi voru í úrslitaleikjum fyrir ekki svo löngu. ÍBV hafði betur gegn FH í úrslitaleik 2017 og Valur lagði KR í úrslitaleik 2015.

Þessir leikir fara fram 4. nóvember næstkomandi.

Undanúrslitin:
ÍBV - FH
Valur - KR
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner