Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 10. september 2020 12:44
Magnús Már Einarsson
Samningamál Bielsa loksins klár
Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa, þjálfari Leeds, hefur staðfest að búið sé að ganga frá samningamálum hans.

Þessi 65 ára gamli Argentínumaður gerði tveggja ára samning þegar hann tók við Leeds árið 2018.

Bielsa stýrði Leeds upp í ensku úrvalsdeildina í sumar og nú er loksins búið að ganga frá nýjum samningi fyrir komandi tímabil.

„Það er búið að ganga frá öllu og það er klárt að ég verð hér á næsta tímabili," sagði Bielsa á fréttamannafundi í dag.

Leeds mætir Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner