Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 10. september 2022 12:20
Aksentije Milisic
Antony: Engin orð sem geta lýst Ronaldo
Félagarnir.
Félagarnir.
Mynd: EPA

Nýjasti leikmaður Manchester United, Antony, talar mjög vel um Cristiano Ronaldo og segir Brassinn að hann hafi nú þegar lært helling af Ronaldo.


Antony var í byrjunarliðinu og skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Man Utd sem var gegn Arsenal fyrir tæpri viku síðan en Cristiano Ronaldo kom inn á í leiknum sem varamaður fyrir einmitt Antony.

Þeir félagarnir voru svo báðir í byrjunarliðinu í Evrópudeildinni í fyrradag þar sem Man Utd tapaði gegn Real Sociedad með einu marki gegn engu.

„Það eru engin orð sem geta lýst Ronaldo. Á aðeins nokkrum dögum hef ég lært helling af honum. Hann er með magnað hugarfar og í hvert einsta skipti sem ég tala við hann, þá læri ég eitthvað nýtt," sagði Antony sem lítur mikið upp til Ronaldo.

Manchester United átti að ferðast til London og mæta Crystal Palace á morgun á Selhurst Park í ensku úrvalsdeildinni en allri umferðinni í enska boltanum hefur hins vegar verið frestað vegna fráfalls Elísabetu Englandsdrottningu.


Athugasemdir
banner
banner
banner