Hansi Flick rekinn (Staðfest) - Völler stýrir Þjóðverjum tímabundið


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Hansi Flick hefur verið rekinn af þýska fótboltasambandinu sem landsliðsþjálfari Þýskalands.
Liðinu hefur gengið afar illa undanfarið en síðasta stráið var 4-1 tap gegn Japan í æfingaleik um helgina.
Þýskaland féll úr leik í riðlakeppni HM í Katar en er komið á EM þar sem þjóðin heldur mótið eftir aðeins 9 mánuði og er leit hafin af nýjum stjóra fyrir mótið.
Rudi Völler mun stýra liðinu til bráðabirgða. Næsti leikur liðsins er á þriðjudaginn en það er æfingaleikur gegn Frakklandi.





