10.09.26 - 20:07
Brynjar Ingi Erluson
Elías Rafn og Ísak Andri áfram í bikarnum

Ísak Andri lék síðustu mínúturnar með Norrköping

Mynd: IFK Norrköping

Elías Rafn Ólafsson og Ísak Andri Sigurgeirsson eru báðir komnir áfram í bikarnum með liðum sínum í Danmörku og Svíþjóð.
Ísak Andri spilaði síðustu mínúturnar í 2-0 sigri Norrköping á Varberg og tryggði liðið sér þar með sæti í riðlakeppni sænska bikarsins sem fer fram í byrjun næsta árs.
Stjörnumaðurinn hefur ekki verið í stóru hlutverki síðan hann sneri aftur til Norrköping frá Viborg en þó fengið mínútur af bekknum.
Liðinu hefur gengið afar vel í sænsku B-deildinni og stefnir hraðbyri aftur upp í úrvalsdeildina, enda með tíu stiga forskot á toppnum þegar sjö umferðir eru eftir.
Elías Rafn og félagar í Midtjylland eru einnig komnir áfram eftir 7-0 stórsigur á Sundby í danska bikarnum og leika því í 16-liða úrslitum. Markvörðurinn fékk hvíld að þessu sinni en var til taks á bekknum.
Erilsamir mánuðir eru framundan hjá Midtjylland, sem er í öðru sæti dönsku deildarinnar með 15 stig, þremur á eftir toppliði FCK. Auk baráttunnar heima fyrir tekur liðið þátt í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.