Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 10. október 2020 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu sigurmark Man Utd - „Þær börðust"
Casey Stoney.
Casey Stoney.
Mynd: Getty Images
„Ég er nokkuð ánægð. Við byrjuðum ekki nægilega vel, eftir fyrstu 10-15 mínúturnar vorum við liðið sem skapaði betri færi," sagði Casey Stoney, þjálfari Manchester United eftir sigur á Tottenham í úrvalsdeild kvenna í Englandi í dag.

Man Utd vann leikinn 1-0. Eina mark leiksins skoraði Millie Turner á 67. mínútu. Hún skallaði hornspyrnu Tobin Heath í netið.

Man Utd er núna á toppi deildarinnar en fjórða umferðin heldur áfram á morgun.

„Við áttum sigurinn skilið, en ég verð að hrósa Tottenham. Þær komu hingað með leikplan, þær voru beinskeyttar og sköpuðu vandræði fyrir okkur."

„En veistu hvað ég var með ánægð með í leik míns liðs? Þær börðust, þær beittu líkamlegum styrk og náðu í sigurinn."

Hér að neðan má sjá sigurmark Man Utd í leiknum



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner