Fotbolti.net
10.10.21 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Miklar líkur að Neymar taki eitt HM í viðbót og ekki söguna meir

Neymar.

Neymar.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíumaðurinn Neymar býst við því að HM á næsta ári verði hans síðasta heimsmeistaramót á ferlinum.
Neymar verður bara 34 ára þegar HM 2026 verður, en hann gerir ekki ráð fyrir að taka þátt þar með Brasilíu.

„Ég held að þetta verði mitt síðasta HM," sagði Neymar í nýrri heimildarmynd sem er verið að gefa út um hann. Myndin ber heitið Neymar & The Line Of Kings.

„Mér finnst ég ekki vera með nægilega mikinn andlegan styrk til að takast á við fótbolta mikið lengur."

Neymar segist ætla að gera allt sem hann getur til að hjálpa Brasilíu að vinna HM á næsta ári; það sé hans mesti draumur. Neymar spilaði með Brasilíu á HM 2014 og 2018. Liðið féll þar úr leik í undanúrslitum og átta-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.