Bæði kaldar og hlýjar kveðjur á stuðningsmannasíðu Blika

Fjögurra ára þjálfaratíð lokið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sæti í riðlakeppni fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grátlega nálægt því að verða Íslandsmeistarar 2021 og unnu svo mótið sannfærandi 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar voru vítaspyrnu frá því að vinna Íslandsmótið 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar og Dóri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjögurra ára þjálfaratíð lokið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjallað er um þjálfarabreytingarnar sem ákveðnar voru í síðustu viku. Óskar Hrafn Þorvaldsson lét stjórn vita að hann óskaði eftir því að fá að láta af störfum í lok riðlakeppni Sambandsdeildarinnar í desember. Stjórnin tilkynnti honum nokkrum dögum síðar að hans síðasti leikur yrði gegn Stjörnunni og var Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari í þjálfaratíð Óskars, tilkynntur sem nýr þjálfari meistaraflokks karla og hann ráðinn til næstu þriggja ára.
Eftir leikinn gegn Breiðabliki var eftirfarandi skrifað um tíðindi sunnudagsins. Tekin er ein efnisgrein og fréttina í heild má nálgast hér.
„Strax eftir leikinn var tilkynnt að Óskar Hrafn Þorvaldsson myndi ekki halda áfram með liðið. Í kjölfarið kom einnig sú frétt að Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns hefði verið ráðinn þjálfari Breiðabliks næstu þrjú árin. Fréttin að Óskar Hrafn myndi ekki halda áfram kom í sjálfu sér ekki á óvart eftir atburðarás síðustu daga. Fjölmiðlar hafa verið fullir af fréttum að Óskar Hrafn væri hugsanlega að taka við liði Haugesund í Noregi. Það þarf því að ekki að koma á óvart að stjórn knattspyrnudeildar hafi tekið þessa ákvörðun. Það kemur hins vegar aðeins meira á óvart að stjórnin hafi ákveðið að ráða Halldór. Ekki þannig að Halldór sé ekki vandanum vaxin. En það voru ýmis önnur þekktari nöfn sem voru nefnd til sögunnar. En Halldóri eru sendar góðar kveðjur og við óskum honum velfarnaðar með Blikaliðið í komandi verkefnum. Á sama tíma þökkum Óskari Hrafni fyrir farinn veg. Hann hefur skrifað nafn sitt á spjöld sögunnar sem þjálfarinn sem kom fyrstur íslensku liði áfram í riðlakeppni Evrópu. Það verður aldrei frá honum tekið og óskum við honum alls hins besta í komandi verkefnum."
Það vekur athygli að það komi stuðningsmanni félagsins, greinarhöfundi, ekki á óvart að þjálfari sem kom liðinu fjögur ár í röð í Evrópukeppni, stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils og varð fyrsti þjálfarinn til að koma íslensku liði í riðlakeppni í Evrópu sé látinn fara frá félaginu tveimur mánuðum fyrr en hann hafði óskað eftir. Breytingin sú að aðstoðarþjálfarinn tekur við, ekki eins og það hefði ekki getað gerst á náttúrulegan hátt í lok riðlakeppninnar. Einn titill og sex Evrópueinvígi unninn og þetta eru kveðjurnar frá stjórn og á stuðningsmannasíðu félagsins.
Það vekur líka athygli að stuðningsmaður skrifi að það komi á óvart að Halldór hafi verið ráðinn. Hljómar ekki eins og fullt traust frá fyrsta degi.
Kannski veit Andrés Pétursson, greinarhöfundur, meira en aðrir, kannski var gjörsamlega ómögulegt að hafa Óskar áfram í starfi, en það kemur allavega ekki fram og ekki er hann búinn að ráða sig annað á þessum tímapunkti. Það hefur heldur ekki komið frá stjórnarmönnum Breiðabliks hvers vegna þessi ákvörðun var tekin. En hún kom höfundi greinar á stuðningsmannasíðu Blika ekki á óvart. „Hreinlegast" var orðið sem notað var í tilkynningu knattspyrnudeildar.
Formaður knattspyrnudeildar svaraði ekki þegar Fótbolti.net reyndi að hafa samband við hann í gær.
Tókst að koma liðinu lengra en áður hafði tekist með djörfum sóknarbolta
Í dag birtist svo grein þar sem farið er mjög fögrum orðum um Óskar. Ritstjórn Blikar.is er titluð fyrir þeirri grein.
Óskar var ráðinn til félagsins 5.október 2019 og vakti ráðningin talsverða athygli, ekki síst fyrir þá sök að hann var þá nýbúinn að stýra meistaraflokki Gróttu upp í efstu deild, í fyrsta sinn. Enn fremur töldu margir sparkspekingar Blika taka talsverða áhættu með að ráða til þess að gera óreyndan þjálfara til að taka næsta skref með okkar lið.
Óskar var ekkert að tvínóna við hlutina og hélt fund með stuðningsmönnum þar sem hann lýsti í grófum dráttum hvernig fótbolta hann og Halldór ætluðu að láta liðið spila, til að þróa það áfram. Og hann bað fólk sýna því skilning þó spilamennskan myndi kosta nokkur mörk, því það myndi hún óhjákvæmilega gera á meðan verið væri að slípa þetta til og sníða af mestu hnökrana. Óhætt er að segja að spilamennskan hafi verið nýstárleg og sannarlega reynt á taugar og langlundargeð áhangenda jafnt sem leikmanna, því nóg var af gjafamörkum, og sérstaklega framan af. En til að gera langa sögu stutta má segja að með þessu uppleggi hafi Óskari tekist að lyfta Blikaliðinu upp á þann stall sem honum varð tíðrætt um með því að ná lengra í Evrópukeppni en áður hafði tekist, og jafnframt að krækja í Íslandmeistaratitilinn á sannfærandi hátt.
Liðið hefur lengst af spilað skemmtilegan fótbolta og glatt áhorfendur með djarfri spilamennsku, og ólíkt því sem flest íslensk lið hafa oftast gert í viðureignum við sterk erlend lið í áratugi hafa Blikar verið óhræddir við að halda boltanum og spila sóknarbolta, í stað þess að hlaða grjótgarð á eigin vallarhelmingi. Margir urðu til að gagnrýna þennan leikstíl, og stundum komu skellir, en sú staðreynd að Blikar ruddu mörgum hindrunum úr vegi og komust fyrstir íslenskra karlaliða í riðlakeppni UEFA hefur kveðið þá gagnrýni í kútinn.
Allt Breiðabliksfólk hefur verið stolt af þessu liði og nú þegar Óskar hverfur til annarra verkefna vill ritstjórn Blikar.is óska honum velfarnaðar og þakkar honum fyrir vel unnin störf hjá félaginu.

Sæti í riðlakeppni fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grátlega nálægt því að verða Íslandsmeistarar 2021 og unnu svo mótið sannfærandi 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar voru vítaspyrnu frá því að vinna Íslandsmótið 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar og Dóri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





