Fotbolti.net
10.10.23 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

De Gea birti mynd af sér í Manchester

David de Gea.

David de Gea.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn David de Gea er þessa stundina staddur í Manchester en hann birti mynd af sér í borginni í dag.
De Gea er hins vegar ekki að fara að skrifa aftur undir hjá Manchester United þó einhverjir hafi kallað eftir því undanfarnar vikur.

Samkvæmt Daily Mail þá er spænski markvörðurinn bara í borginni til þess að ganga frá lausum endum er varðar húsnæði sitt. Hann er að sækja eigur sínar.

De Gea yfirgaf Man Utd eftir síðustu leiktíð þar sem hann fékk ekki nýjan samning. Hann hafði varið mark liðsins í tólf ár.

Andre Onana var fenginn inn í staðinn en hann hefur ekki farið vel af stað með United og hafa sumir kallað eftir því á samfélagsmiðlum að De Gea snúi aftur.

De Gea er enn án félags en hann er afslappaður varðandi framtíð sína.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.