Gera breytingar á notkun VAR á Englandi


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Það hafa verið mörg mistök í VAR herberginu á þessari leiktíð í ensku úrvalsdeildinni en Howard Webb yfirmaður dómara í úrvalsdeildinni segir að það hafi verið gerðar breytingar á notkun VAR.
Í leik Tottenham og Liverpool kom upp atvik þar sem mark var dæmt af Liverpool þar sem talið var að Luis Diaz hafi verið í rangstöðu. Það urðu samskiptaöðruleikar milli VAR og dómara leiksins og niðurstaða dómarans stóð.
Webb útskýrði breytingarnar.
"Þetta leiddi í ljós nauðsyn þess að ítreka samskiptareglurnar sem eru virkilega dýrmætar. Við viljum að dómarar á vellinum segi VAR skýrt hver ákvörðunin er og að VAR fari aftur til dómarans til að athuga að þeir hafi heyrt hana rétt," sagði Webb.
„VAR fer í gegnum ferlið að skoða ákvörðunina, tala við aðstoðar VAR dómara áður en farið er í að tala við dómarann á vellinum til að tilkynna ákvörðunina. Þeir eiga ekki bara að segja 'athugun lokið', í staðin segja þeir 'Athugun lokið, rangstaða niðurstaðan'.
„Það hafa verið gerðar margar breytingar til að koma í veg fyrir að þessi mistok koma ekki aftur fyrir."





