Fotbolti.net
11.01.23 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Cavani enn pirraður: Þeir verða að setja hann í fangelsi

Það voru læti þegar Úrúgvæ féll úr leik.

Það voru læti þegar Úrúgvæ féll úr leik.

Canon

Mynd: EPA

Leikmenn Úrúgvæ eru enn pirraðir yfir því hvernig þeir féllu úr leik á HM í Katar.
Úrúgvæ vann Gana 2-0 en hefði þurft eitt mark í viðbót til að komast upp úr H-riðlinum.

Leikmenn Úrúgvæ veittust að dómaranum eftir leik en þeir voru ósáttir við að fá ekki vítaspyrnu. Sóknarmaðurinn Edinson Cavani var á meðal þeirra sem sýndu mesta pirringinn. Og hann er enn pirraður, meira en mánuði síðar.

„Þeir verða að setja hann í fangelsi," sagði Cavani í samtali við El Larguero um dómarann Daniel Siebert.

„Ef þeir refsa mér fyrir að sýna tilfinningar því hann dæmdi okkur úr leik, þá verða þeir að setja hann í fangelsi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.