Fjögur lið berjast um spænska ofurbikarinn í Sádi-Arabíu næstu daga en í kvöld fer fram fyrri undanúrslitaleikur keppninnar.
Spánarmeistarar Real Madrid taka þá á móti Valencia á King Fahd-leikvanginum í Riyadh í Sádi-Arabíu.
Leikurinn hefst klukkan 19:00, en síðari undanúrslitaleikurinn er á morgun á milli Barcelona og Real Betis.
Leikur dagsins:
19:00 Real Madrid - Valencia
Athugasemdir