Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 11. febrúar 2021 16:13
Magnús Már Einarsson
Valgerður Ósk í Fylki (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Valgerður Ósk Valsdóttir hefur gert tveggja ára samning við knattspyrnudeild Fylkis en Valgerður, sem er 19 ára gömul, kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu FH.

Alls hefur Valgerður leikið 40 leiki með meistaraflokki FH í deild og bikar.

Þá á Valgerður Ósk að baki 12 leiki með yngri landsliðum Íslands, 7 leiki með U19 og 5 leiki með U17.

„Við bjóðum Valgerði Ósk hjartanlega velkomna í Árbæinn!
FYLKIR ÁRBÆJARINS BESTA,"
segir á Facebook síðu Fylkis.

Valgerður Ósk til liðs við Fylki

Valgerður Ósk Valsdóttir hefur gert tveggja ára samning við knattspyrnudeild Fylkis...

Posted by Íþróttafélagið Fylkir on Fimmtudagur, 11. febrúar 2021

Athugasemdir
banner
banner
banner