Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 11. mars 2020 17:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Inter gegn Getafe frestað (Staðfest)
Mynd: Twitter
Inter sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag og segir í henni frá því að viðureign liðsins gegn Getafe muni ekki fara fram á morgun.

Inter og Getafe áttu að mætast annað kvöld í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Sjá einnig:
Getafe neitar að ferðast til Ítalíu

Í tilkynningunni kemur fram að vegna takmarkanna á ferðalögum milli Spánar og Ítalíu, sem spænsk yfirvöld settu, muni leikurinn ekki geta farið fram annað kvöld. UEFA mun skoða hvaða ákvörðun verður tekin varðandi þetta mál í framhaldinu.
Athugasemdir
banner
banner