Chilwell skrifar undir nýjan samning (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ben Chilwell bakvörður Chelsea hefur framlengt samning sinn til ársins 2027. Hann átti tvö ár eftir af samningnum áður en hann framlengdi til tveggja ára til viðbótar í dag.
Chilwell gekk til liðs við Chelsea árið 2020 og vann Meistaradeildina með liðinu á ári síðar.
„Mér líður mjög vel hjá Chelsea og hef notið tímans á vellinum svo ég er mjög ánægður að félagið vill að ég sé hluti af verkefninu til langtíma og ég er mjög ánægður að hafa skrifað undir framlengingu á samningnum mínum," sagði Chilwell.
„Við erum að vinna hörðum höndum að ná árangri og ég vil gera mitt besta til að fá stuðningsfólkið sem hefur boðið mig velkominn til að brosa."
Two more years for @BenChilwell! ????
— Chelsea FC (@ChelseaFC) April 11, 2023




