Fotbolti.net
11.04.23 - 13:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Landsliðsmaður skaut á Óskar - „Það var bara ömurlegt"

Oliver Stefánsson.

Oliver Stefánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Breiðablik er með býsna stóran og öflugan hóp, en þrír af nýju leikmönnum liðsins voru ekki í leikmannahópnum gegn HK í fyrsta leik Bestu deildarinnar í gær. Breiðablik tapaði leiknum óvænt, 3-4.

Alex Freyr Elísson, Klæmint Olsen og Oliver Stefánsson gengu allir í raðir Breiðabliks í vetur en þeir voru allir utan hópsins í gær.
Það er ekki öfundsvert verk að skera niður hópinn hjá Blikum á leikdegi en Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, segir að það hafi verið ömurlegt að tilkynna þeim að þeir yrðu ekki í hópnum í fyrsta leiknum.

„Það var bara ömurlegt, mjög leiðinlegt. Þeir eru frábær leikmenn allir þrír, fjórir reyndar. Dagur Örn Fjeldsted var líka utan hóps. Það er bara leiðinlegt en er því miður hluti af því að vera í hóp. Það mega ekki fleiri en 18 vera á skýrslu, því miður er það þannig," sagði Óskar eftir leikinn í gær.

„Það hafa allir mikilvægu hlutverki að gegna í þessum hóp, sama hvort þeir séu innan hóps eða utan hóps í stökum leik."

Óskar var spurður að því hvort hann muni minnka hópinn áður en glugginn lokar en sagðist ekki vera með plön um það.

Landsliðsmaður birti mynd af Oliver
Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson virtist skjóta á Óskar Hrafn í gær en hann birti einfaldlega mynd af leikmanninum á Twitter. Stefán Teitur og Oliver eru báðir af Skaganum, þekkjast þaðan.

Rætt var um hópinn hjá Breiðabliki í Innkastinu í dag. „Landsliðsmaður í fótbolta var með beint skot á þjálfara Blika, Óskar Hrafn," sagði Elvar Geir Magnússon.

„Maður pælir í því með Oliver sérstaklega þar sem hann hafði úr miklu að velja þegar hann kom til Íslands. Hann valdi að fara í Breiðablik og kemst ekki í hópinn," sagði undirritaður í þættinum.

„Hann er fjórði kostur í miðvarðarstöðuna," sagði Sæbjörn Þór Steinke um Oliver en hægt er að hlusta á alla umræðuna hér fyrir neðan. Ofan á þessa þrjá sem hafa verið nefndir hér í fréttinni þá voru Davíð Ingvarsson og Kristinn Steindórsson ekki heldur með Breiðabliki í gær vegna meiðsla. Breiddin er gríðarleg en það verður áhugavert að sjá lið Blika í næsta leik gegn Val.

Breiðablik fagnar marki í gær.

Breiðablik fagnar marki í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn: Ekki í boði í þessari deild, sama hver andstæðingurinn er

<b>Innkastið</b> - Tryllt byrjun á deild þeirra Bestu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.