Paul Ince rekinn þegar fimm leikir eru eftir (Staðfest)

Paul Ince.

Mynd: Getty Images

Paul Ince.

Mynd: Getty Images
Paul Ince hefur verið rekinn úr starfi sínu hjá Reading á Englandi þegar aðeins fimm leikir eru eftir af tímabilinu.
Ince var ráðinn til bráðabirgða í febrúar á síðasta ári og fékk svo starfið til frambúðar í maí það sama ár.
Reading er í bölvuðu basli í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands, og hefur liðinu ekki tekist að vinna í síðustu átta leikjum sínum. Eftir tap gegn Preston um liðna helgi er liðið aðeins einu stigi frá fallsvæðinu.
Noel Hunt, fyrrum sóknarmaður Reading, mun stýra liðinu út tímabilið en hann hefur verið að þjálfa U21-lið félagsins.
Ince er fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins en sonur hans, Tom, er markahæsti leikmaður Reading á tímabilinu.