11.05.16 - 23:07
Kristín Hildur Ragnarsdóttir
Edda Garðars: Gáfum tvö mörk
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edda Garðarsdóttir þjálfari KR þurfti að sætta sig við 4-1 tap í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna þegar lið hennar heimsótti ríkjandi Íslandsmeistara og það lið sem spáð er Íslandsmeistaratitlinum í lok sumars, Breiðablik.
„Breiðablik var sterkara liðið í kvöld, það er á hreinu. Ég er þó stolt af mínum stelpum að gefa ekki upp vonina,\" sagði Edda Garðarsdóttir þjálfari KR.
„Þetta eru ungar stelpur og einhverjar voru að spila sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni. Við erum að gefa þeim tvö af fjórum mörkunum.\"
„Það er frábært að deildin sé byrjuð. Við erum búnar að bíða lengi eftir að deildin byrji og okkur hlakkar mjög mikið til að spila næsta leik.“
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.