Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 11. maí 2020 15:45
Hafliði Breiðfjörð
Jón Aðalsteinn hættur með Kára (Staðfest)
Jón Aðalsteinn er hættur með Kára.
Jón Aðalsteinn er hættur með Kára.
Mynd: Kári
Jón Aðalsteinn Kristjánsson er hættur sem þjálfari Kára á Akranesi en þetta staðfesti Sveinbjörn Geir Hlöðversson formaður Kára við Fótbolta.net.

Sveinbjörn sagði að enn sé verið að vinna í að finna efitrmann Jóns en þau mál verði afgreidd á næstu dögum.

Hann segir að Jón Aðalsteinn hafi látið af störfum í síðasta mánuði en ástæðan fyrir því eru breyttar vinnuaðstæður hjá honum vegna Covid19 ástandsins.

„Við þökkum Jóni fyrir hans framlag og óskum honum alls hins besta," sagði Sveinbjörn sem vildi líka leiðrétta það sem kom fram í podcastþættinum Ástríðunni á Fótbolta.net að mikill fjöldi leikmanna hafi hætt í fyrra vegna þjálfaravandræða.

„Þetta var einn leikmaður sem hætti og byrjaði aftur seinna um sumarið, meiri fjöldi var það nú ekki," sagði Sveinbjörn.

Kári endaði í 10. sæti í 2. deild karla á síðustu leiktíð og leikur því áfram í deildinni í sumar.
Ástríðan - Sumarið framundan í 2. og 3. deild
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner