Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. maí 2020 17:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Thorsport 
Þór/KA fær markvörð sem lék á Króknum í fyrra (Staðfest)
Mynd: Thorsport.is
Þór/KA hefur samvið við enska markvörðinn Lauren Amie Allen, en hún lék með Tindastóli í Inkasso-deildinni í fyrra. Þetta kemur fram á thorsport.is

„Lauren undirritaði samning við félagið fyrr í vetur, en það hefur síðan verið nokkuð bras að fá hana til okkar vegna áhrifa veirufaraldursins. En nú er hún loksins komin, hefur lokið við sóttkví og klár í að æfa með liðinu strax á morgun." segir á thorsport.is

Lauren lék alla átján leiki Tindastols í næstefstu deild í fyrra og ofan á það þrjá bikarleiki. Tindastóll endaði í þriðja sæti deildarinnar og fékk liðið á sig 34 mörk.

Lauren er fædd árið 1996 en hún lék með Chelsea og Crystal Palace á sínum yngri árum. Nánar er rætt við hana í viðtali á thorsport.is. Þór/KA endaði í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Komnar
Gaby Guillen frá Kosta Ríka
Lauren Amie Allen frá Tindastóli

Farnar
Andrea Mist Pálsdóttir til Oribica Calcio
Bianca Sierra til Tigres
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Lára Kristín Pedersen í KR
Sandra Mayor til Tigres
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir í KR
Athugasemdir
banner
banner
banner