Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. maí 2022 16:30
Elvar Geir Magnússon
James heldur með Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
James Rodriguez.
James Rodriguez.
Mynd: Getty Images
James Rodriguez fyrrum leikmaður Everton segist vonast til þess að erkifjendur félagsins, Liverpool, vinni úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Liverpool leikur gegn hans fyrrum félagi, Real Madrid, í úrslitaleiknum í París þann 28. maí.

„Ég vona að Liverpool verði meistari, ég á marga vini í Real Madrid og þeir eru erfiðir andstæðingar í leik sem þessum. En ég vil að Lucho vinni," segir James.

Lucho er Luis Díaz leikmaður Liverpool en hann og James eru góðir vinir og liðsfélagar úr kólumbíska landsliðinu.

James spilar í dag fyrir Al-Rayyan í Katar og hefur skorað fjögur deildarmörk fyrir liðið á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner