Fotbolti.net
11.06.18 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Birkir Már: Hefur tekist á móti fullt af góðum leikmönnum

Auglýsing
Birkir Már á æfingu í morgun.

Birkir Már á æfingu í morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Spennan er að byggjast upp hægt og rólega. Maður er slakur ennþá en spennan kemur í vikunni,\" sagði hægri bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson fyrir æfingu íslenska landsliðsins í dag en fimm leikir eru í að liðið mæti Argentínu í fyrsta leik á HM.
Birkir mun meðal annars eiga í höggi við Lionel Messi í leiknum á laugardag.

„Mér finnst geggjað að spila á sama velli og Messi. Þegar maður kemur inn á völlinn verður maður að gleyma því hverjir eru hinumegin og fara í leikinn til að vinna hann.\"

Birkir hefur áður mætt mörgum af öflugustu leikmönnum heims í leikjum með landsliðinu.

„Liðið þarf að gera þetta saman. Við höfum gert það á móti fullt af góðum leikmönnum og það hefur yfirleitt tekist. Ég sé enga ástæðu til að breyta því á laugardaginn.\"

Birkir spilaði ekki gegn Gana á fimmtudaginn vegna smávægilegra meiðsla en hann æfði í gær án vandræða og er klár í slaginn.

„Ég vildi spila til að fá fleiri mínútur með landsliðinu en ég vildi ekki togna og verða frá í fjórar vikur. Þess vegna sleppti ég þessum leik.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.