Serbinn Nenad Zivanovic er lang-langlífasti þjálfarinn í efstu tveimur deildum Íslands. Hann hefur verið þjálfari Ægis frá því í september 2018 og hefur í tvígang komið liðinu upp í Lengjudeildina.
Hann kom fyrst til Íslands árið 2006 sem leikmaður þegar hann samdi við Breiðablik. Hann spilaði einnig með Þór og KF hér á landi. Á morgun, klukkan 17:30, tekur Ægir á móti Breiðabliki í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn.
Fótbolti.net ræddi við þjálfarann í dag.
Hann kom fyrst til Íslands árið 2006 sem leikmaður þegar hann samdi við Breiðablik. Hann spilaði einnig með Þór og KF hér á landi. Á morgun, klukkan 17:30, tekur Ægir á móti Breiðabliki í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn.
Fótbolti.net ræddi við þjálfarann í dag.
„Við erum að mæta stærsta félagi í íslenskum fótbolta á morgun. Ég er ekki að segja að þeir séu með besta liðið — það verður ekki ljóst fyrr en í október þegar Bestu deildinni lýkur. Ég vona reyndar að Breiðablik verði meistari. En við munum ekki leggjast fyrir þeim. Við munum berjast við þá um sæti í undanúrslitunum."
„Ég býst við mjög erfiðum leik. Ég er á því að okkar eini möguleiki til að sigra sé ef Breiðablik klikkar á sínum tækifærum á meðan við nýtum okkar," segir Nenad.
Hvernig er fyrir hann að mæta Breiðabliki?
„Þetta er ný staða fyrir mig, þetta er í fyrsta sinn á mínum ferli, bæði sem þjálfari og leikmaður, þar sem ég mæti Breiðabliki."
„Breiðablik á stað mjög nálægt hjarta mínu og mun alltaf eiga. En það er samt þannig að félagið sem ég starfa fyrir er í forgangi hjá mér. Þess vegna verða engar þannig tilfinningar á meðan leik stendur. Ef við förum áfram, þá verð ég glaðasti maður í heimi."
„Þegar ég lít til baka á tíma minn hjá Breiðabliki þá stendur upp úr hversu velkominn ég var þar af öllum hjá félaginu. Að vinna með Óla Kristjánssyni og Arnari Bill Gunnarssyni, tveimur fótboltaséníum, mótaði mig mikið bæði sem persónu og einnig sem fótboltamann og þjálfara. Ég man líka vel eftir sterku liðsheildinni, vinskapnum og samverunni með hópnum."
„Ef ég á að velja eina sérstaka minningu, þá væri það 2-1 útisigurinn gegn KR (20. maí 2008) þegar ég skoraði bæði mörkin. Það er augnablik sem ég mun alltaf muna eftir," segir Nenad. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks á þeim tíma, varð einmitt fertugur sama dag.
Hann kom til Breiðabliks árið 2006 þegar Bjarni Jó var þjálfari liðsins. Nenad segir að hann hafi farið til Breiðabliks í gegnum Goran Kristófer Micic sem var milligöngumaður í félagaskiptunum frá Serbíu.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?
„Mig langar að bjóða báðum stuðningsmannahópum til að mæta á leikinn og njóta leiksins. ég vona að þetta verði frábær fótboltaleikur," segir Nenad að lokum.


