Sæti 4 til 1
Það er komið að því, HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó hefst í kvöld. Núna er komið að því að skoða hvaða lið við teljum sterkust fyrir mótið.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net höfum verið að kynna liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við höfum tekið fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og núna er það lokafréttin áður en mótið hefst.
Við höldum svo áfram þessari kraftröðun á meðan mótinu stendur.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net höfum verið að kynna liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við höfum tekið fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og núna er það lokafréttin áður en mótið hefst.
Við höldum svo áfram þessari kraftröðun á meðan mótinu stendur.
4. England
Eru í 4. sæti á heimslistanum.
Það er líklega engin þjóð í fótboltaheiminum sem hefur lifað jafn lengi á setningunni „kannski er þetta árið“ og England. Áratugir hafa liðið frá síðasta stóra titlinum árið 1966 og kynslóð eftir kynslóð hefur verið kynnt sem sú sem loksins muni koma boltanum heim. En sagan hefur alltaf hingað til endað með vonbrigðum. Það voru margir stórir póstar skildir eftir heima en fyrir mótið í ár erum við samt sem áður að horfa á gríðarlega sterkt enskt landslið. Harry Kane er enn einn besti framherji heims, Jude Bellingham hefur þróast í stórstjörnu, Declan Rice stjórnar miðjunni og í kringum þá er hópur sem er bæði djúpur og reynslumikill. Það hjálpar líka að England hefur komist í tvo úrslitaleiki á síðustu þremur stórmótum. Undirbúningurinn fyrir HM hefur þó ekki verið gallalaus. Thomas Tuchel hefur enn ekki náð að móta alveg skýra stefnu og úrslitin gegn sterkari þjóðum hafa valdið ákveðnum áhyggjum. Jafntefli gegn Úrúgvæ og tap gegn Japan voru ekki nákvæmlega þau skilaboð sem Englendingar vildu senda rétt fyrir mótið. Sérstaklega vakti athygli hversu tannlaus sóknarleikurinn varð þegar Kane var ekki á vellinum. Það er kannski stærsta spurningin sem hangir yfir þessu liði. England hefur gríðarlega breidd á flestum stöðum, en enginn annar leikmaður í hópnum getur komið í stað Kane. Ef fyrirliðinn helst heill og í formi eiga Englendingar alla möguleika á að fara alla leið. Ef eitthvað kemur fyrir hann gæti allt breyst mjög hratt. Englendingar fara inn í mótið með sömu gömlu væntingarnar og spurningin er hvort fótboltinn komi loksins heim að þessu sinni.
Þjálfarinn: Thomas Tuchel kom inn í enska landsliðið með eitt skýrt markmið: Að vinna stóran titil. Þjóðverjinn hefur unnið Meistaradeildina og stýrt stærstu félögum Evrópu, en verkefnið með England gæti reynst það erfiðasta hingað til. Hann erfði frábæran leikmannahóp en þarf nú að finna réttu formúluna. Það er alveg gríðarleg pressa á honum að ná árangri en það hræðir hann ekkert.
Lykilmaður: Harry Kane (Bayern München) er markahæsti landsliðsmaður í sögu Englands og hann hefur líklega aldrei verið í betra formi en núna. Kane hefur oft borið enska sóknarleikinn á herðum sér og það verður ekkert öðruvísi í sumar. Ef England ætlar að vinna HM þarf fyrirliðinn að eiga stórmót og hann þarf að haldast heill í gegnum mótið.
Gaman að fylgjast með: Nico O'Reilly (Manchester City) sló í gegn í ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili þar sem var einn allra besti vinstri bakvörður deildarinnar. O'Reilly er mjög fjölhæfur þar sem hann getur líka spilað inn á miðsvæðinu. Hefur sýnt að hann stígur upp á stóru augnablikum og framtíð hans er mjög spennandi.
Leikir á HM: Króatía í Dallas (17. júní); Gana í Boston (23. júní); Panama í New York (27. júní).
3. Argentína
Eru í 3. sæti á heimslistanum.
Argentína kemur til Norður-Ameríku sem handhafi allra stærstu titlanna: Heimsmeistari frá Katar 2022 og tvöfaldur Suður-Ameríkumeistari eftir sigra í Copa América 2021 og 2024. Kjarninn í liðinu er enn sá sami og Lionel Scaloni hefur byggt upp eitt samstilltasta landslið heims. Og Lionel Messi er hvergi nærri hættur. Núna í vikunni mættu þeir Íslandi í æfingaleik og unnu 3-0. Messi kom inn af bekknum og minnti alla á að þótt hann sé nálgast fimmtugsaldur, þá eru töfrarnir enn til staðar. Það sem gerir Argentínumenn svo hættulega er að það snýst ekki lengur allt um Messi. Julián Álvarez, Enzo Fernández, Alexis Mac Allister, Lautaro Martínez og fleiri hafa tekið meiri ábyrgð með hverju árinu. Liðið er reynslumikið, vel skipulagt og veit nákvæmlega hvernig á að vinna stórmót. Sagan er hins vegar ekki á þeirra bandi. Ekkert landslið hefur varið heimsmeistaratitilinn síðan Brasilía gerði það árið 1962. Ef einhver þjóð á þó að geta brotið þá hefð er það mögulega þessi argentínska vél sem leyfir sér að dreyma um að endurtaka leikinn frá því í Katar fyrir fjórum árum síðan.
Þjálfarinn: Lionel Scaloni hefur umbreytt argentínska landsliðinu frá því hann tók við árið 2018. Hann hefur leitt liðið til heimsmeistaratitils og tveggja Copa América sigra og skapað einstaka liðsheild þar sem allir virðast vita nákvæmlega sitt hlutverk. Scaloni er ekki háværasti þjálfarinn, en fáir hafa náð jafn miklum árangri á jafn skömmum tíma og hann. Hann spilaði sjö landsleiki fyrir Argentínu á sínum ferli og þjálfaði yngri landsliðin áður en hann tók við A-landsliðinu.
Lykilmaður: Lionel Messi (Inter Miami) er að margra mati besti fótboltamaður sögunnar. Þótt hann sé orðinn 38 ára gamall getur hann enn breytt leikjum með einni sendingu eða einu augnabliki af snilli. Innkoma hans gegn Íslandi minnti mann á það hversu góður hann er. Argentína er ekki lengur algjörlega háð honum, en þegar Messi er á vellinum verður allt mögulegt.
Gaman að fylgjast með: Nico Paz (Como) er einn mest spennandi ungi leikmaður heims. Sóknarsinnaði miðjumaðurinn hefur verið að springa út á Ítalíu og er sterklega orðaður við endurkomu til Real Madrid þar sem hann ólst að miklu leyti upp. HM gæti orðið mótið þar sem hann kynnir sig almennilega fyrir alþjóðlegum áhorfendum.
Leikir á HM: Alsír í Kansas City (16. júní); Austurríki í Dallas (22. júní); Jórdanía í Dallas (27. júní).
2. Spánn
Eru í 2. sæti á heimslistanum.
Evrópumeistararnir hafa ekki tapað leik síðan í mars 2024 og hafa aðeins tapað tvisvar frá upphafi árs 2023. Það segir sitt um stöðugleikann sem Luis de la Fuente hefur komið á hjá liðinu. Það sem gerir þetta spænska lið sérstaklega ógnvekjandi er að það virðist enn vera að bæta sig. Kynslóðin sem vann Evrópumótið árið 2024 er enn ung og margir af bestu leikmönnum liðsins eru ekki einu sinni komnir á sitt besta skeið. Lamine Yamal, Pedri, Gavi, Nico Williams og fleiri hafa þegar unnið stórmót en virðast enn eiga nóg inni. Þetta er ekki sama spænska landsliðið og vann HM árið 2010 með endalausum sendingum og yfirburðum á boltanum. Þetta lið spilar hraðari, beinskeyttari fótbolta og býr yfir meiri sprengikrafti en margar fyrri útgáfur spænska liðsins. Það er erfitt að finna augljósa veikleika og enn erfiðara að finna lið sem hefur jafn mikla breidd. Stærsta áhyggjuefnið fyrir mótið snýr að Lamine Yamal, sem hefur verið tæpur vegna meiðsla. Ef hann nær fullri heilsu verður Spánn enn erfiðari viðureignar. Ef ekki, þá eru samt líklega nægilega mörg vopn í þessu liði til að fara alla leið.
Þjálfarinn: Luis de la Fuente tók við spænska landsliðinu eftir HM 2022 þar sem liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum gegn Marokkó og hefur síðan umbreytt því til hins betra. Það voru ekki allir sannfærðir um ráðninguna á honum en hann leiddi Spán til sigurs á EM 2024 og hefur byggt upp lið sem sameinar hefðbundna spænska tækni við meiri hraða og áræðni. Fáir þjálfarar mæta til mótsins með jafn mikið traust frá þjóð sinni og De la Fuente sem stýrði yngri landsliðunum áður en hann tók við A-landsliðinu.
Lykilmaður: Lamine Yamal (Barcelona) er að margra mati besti leikmaður heims í dag þrátt fyrir að vera bara 19 ára gamall. Hann var einn af bestu leikmönnum Evrópumótsins 2024 og getur breytt gangi leikja með tækni sinni og hraða. Spænska þjóðin bíður nú spennt eftir fréttum af heilsufari hans fyrir fyrstu leikina.
Gaman að fylgjast með: Nico Williams (Athletic Bilbao) hefur kannski ekki spilað frábærlega með félagsliði sínu að undanförnu, en þegar hann klæðist spænsku treyjunni virðist eitthvað sérstakt gerast. Hann var stórkostlegur á Evrópumótinu 2024 og myndaði rosalegt kantpar með Yamal. Ef Nico finnur aftur sitt besta form gæti hann orðið einn af bestu leikmönnum mótsins.
Leikir á HM: Grænhöfðaeyjar í Atlanta (15. júní); Sádi-Arabía í Atlanta (21. júní); Úrúgvæ í Guadalajara (26. júní).
1. Frakkland
Eru í 1. sæti á heimslistanum.
Fá landslið í sögu heimsfótboltans hafa mætt til leiks með jafn mikla breidd og gæði og þetta franska lið. Kylian Mbappé er enn stærsta stjarnan, en í kringum hann er hópur leikmanna með ótrúlega mikil gæði. Undirbúningurinn fyrir mótið gaf áminningu um það. Frakkar lögðu Brasilíu að velli þrátt fyrir að spila manni færri í meira en hálftíma og nokkrum dögum síðar skipti Didier Deschamps út öllum byrjunarliðsmönnunum gegn Kólumbíu. Niðurstaðan? Þægilegur 3-1 sigur þar sem Désiré Doué skoraði tvö mörk. Tap gegn Fílabeinsströndinni á dögunum vakti kannski upp einhverjar áhyggjur en líklega er það bara jarðtengingin sem Frakkarnir þurftu rétt fyrir mót. Frakkar töpuðu úrslitaleik HM 2022 gegn Argentínu í einum beseta fótboltaleik sögunnar, en síðan þá hafa enn fleiri gæðaleikmenn bæst við hópinn. Það er því kannski ekki skrítið að Mbappé hafi nýlega sagt að þetta lið væri jafnvel sterkara en það sem fór alla leið í Katar. Spurningin er ekki hvort Frakkland hafi hæfileikana til að vinna HM. Spurningin er hvort einhver geti stoppað þá.
Þjálfarinn: Didier Deschamps hefur verið leiðtogi franska landsliðsins í rúman áratug. Hann vann HM sem leikmaður árið 1998 og endurtók leikinn sem þjálfari árið 2018. Þetta verður síðasta stórmót hans við stjórnvölinn og svo er búist við að Zinedine Zidane taki við. Fáir þjálfarar í sögunni hafa skilað jafn stöðugum árangri og Deschamps með Frakkland.
Lykilmaður: Kylian Mbappe (Real Madrid) sýnir yfirleitt alltaf sínar bestu hliðar í franska landsliðsbúningnum. Muniði eftir honum á HM í Katar 2022? Einvígi hans við Lionel Messi í úrslitaleiknum var óaðfinnanlegt. Mbappe hefur þegar unnið HM, orðið markakóngur HM og skorað þrennu í úrslitaleik HM. Nú, kominn á besta aldur, virðist hann vera tilbúinn að leiða Frakka til annars heimsmeistaratitils.
Gaman að fylgjast með: Michael Olise (Bayern München) er einn skemmtilegasti leikmaður heims; það er ekkert eðlilega gaman að horfa á hann spila. Hann er töframaður á boltanum, með frábæra tækni og auga fyrir markinu. Ef Frakkar fara alla leið gæti Olise orðið einn af leikmönnum mótsins og þá gerir hann sterkt tilkall í Ballon d'Or verðlaunin.
Leikir á HM: Senegal í New York (16. júní); Írak í Philadelphia (22. júní); Noregur í Boston (26. júní).
09.06.2026 15:30
Kraftröðunin fyrir HM: Frændur vor og leifar af gullkynslóð
08.06.2026 13:00
Kraftröðunin fyrir HM: Fátt um hlátur eða háðsglósur
05.06.2026 14:00
Kraftröðunin fyrir HM: Fyrirmynd Klopp og mögulegur arftaki Salah
04.06.2026 12:00
Kraftröðunin fyrir HM: Lebron James fótboltans
03.06.2026 16:30
Kraftröðunin fyrir HM: Óvissa með þátttöku og núll sigrar
02.06.2026 21:00
Kraftröðunin fyrir HM: Sonur goðsagnar og gestgjafar
01.06.2026 11:00
Kraftröðunin fyrir HM: Gæti verið að byrja fyrir England
29.05.2026 18:00
Kraftröðunin fyrir HM: Snýr aftur 20 árum síðar
28.05.2026 17:10
Kraftröðunin fyrir HM: Fyrrum aðstoðarmaður Sir Alex mætir
21.05.2026 10:30
Kraftröðunin fyrir HM: Tóku metið af okkur Íslendingum
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



