Leikmenn þýska landsliðsins hafa ákveðið greiða fyrir rútur sem munu flytja 600 stuðningsmenn liðsins á lokaleik sinn í riðlakeppninni á HM.
Mikið hefur verið rætt og ritað um gríðarlegan kostnað fyrir stuðningsmenn sem ætla á leiki mótsins en þar eru samgöngur til dæmis að kosta sitt.
Mikið hefur verið rætt og ritað um gríðarlegan kostnað fyrir stuðningsmenn sem ætla á leiki mótsins en þar eru samgöngur til dæmis að kosta sitt.
Það tekur hálftíma að taka lest frá Penn lestarstöðinni í New York og á MetLife leikvanginn í New Jersey þar sem Þýskaland mun leika gegn Ekvador í síðasta leik E-riðils 25. júní.
Venjulega kostar miðinn í lestina um 1.600 íslenskar krónur en miðaverð var snarhækkað upp í 19 þúsund krónur fyrir mótið en eftir mikla gagnrýni var það svo lækkað í 12 þúsund krónur.
Þýska sambandið hefur nú tilkynnt að í ljósi þess hversu dýrir samgöngumátarnir séu þá hafi þýsku landsliðsmennirnir tekið sig saman og bjóða 600 stuðningsmönnum fríar rútuferðir.
Á HM í Rússlandi og Katar var boðið upp á fríar samgöngur fyrir stuðningsmenn og Bandaríkin ætluðu að gera slíkt hið sama en stóðu ekki við þau loforð.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



