Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 12:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Óli Skúla: Þurfum að læra og passa að þetta gerist ekki aftur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir sló út KA í síðustu umferð.
Ægir sló út KA í síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Úr leik Fram og Breiðabliks, Fram sigraði leikinn 4-3.
Úr leik Fram og Breiðabliks, Fram sigraði leikinn 4-3.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir kemur væntanlega inn í lið Breiðabliks á morgun.
Ásgeir kemur væntanlega inn í lið Breiðabliks á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Leikurinn á morgun leggst vel í mig, við búumst við hörkuleik, Ægisliðið er vel skipulagt og gott lið og verður á sínum heimavelli. Þetta er verðugt verkefni og við þurfum að vera upp á okkar besta til að komast áfram," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, við Fótbolta.net en framundan er bikarleikur gegn Ægi á morgun.

Leikurinn hefst 17:30 og fer fram á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn.

Rúllar ekki eins og á gervigrasi
Er einhver öðruvísi undirbúningur fyrir grasleik?

„Nei, ég myndi ekki segja það. Við gerum okkur grein fyrir því að boltinn rúllar kannski ekki eins vel og á gervigrasinu og við þurfum að vera undir það búnir. Við þurfum samt að þora að spila og reyna láta boltann ganga."

Skiptir ekki mál í hvaða deild liðinu eru
Ægir vann 2. deild í fyrra og er nýliði í Lengjudeildinni í ár. Liðið kom mjög mörgum á óvart með því að slá út KA í síðustu umferð bikarsins. Var það ágætis viðvörun fyrir ykkur?

„Við gerum okkur fulla grein fyrir því að þetta er bikarkeppni og við höfum séð það í ár að það skiptir ekki máli í hvaða deildum menn eru, leikurinn er 90 mínútur og þeir slógu KA út á útivelli - eru búnir að vinna sér inn að vera komnir í 8-liða úrslit. Við þurfum að vera upp á okkar besta til þess að komast áfram, við sáum Aftureldingu slá út Stjörnuna í gær og Fylkir sló út FH. Við þurfum að vera vel undirbúnir og klárir í slaginn ef við ætlum að fara áfram, svo einfalt er það, deildin sem liðin eru í hefur ekkert að segja."

Búnir að fara vel yfir síðasta leik
Ólafur var ekki sáttur með sitt lið eftir tapið gegn Fram í síðasta leik fyrir landsleikjahlé og sagði að hann og sitt lið yrði að vinna í andlega þættinum.

„Við höfum farið vel yfir leikinn gegn Fram og sérstaklega yfir hvernig við byrjuðum hann og spilamennskuna í fyrri hálfleik. Fótbolti er þannig að ef þú leggur ekki allt í sölurnar þá verða hlutirnir erfiðari og ef þú mætir ekki til leiks, ert ekki tilbúinn þegar leikurinn byrjar, þá verða afleiðingar. Við byrjuðum þann leik mjög illa og vorum 2-0 undir eftir fimm mínútur, það er bara mjög erfitt á móti öllum liðum og ekki síst á móti Fram sem er hörkulið í Bestu deildinni og líður mjög vel þegar þeir eru yfir. Við höfum farið vel yfir þetta, vorum svo sem búnir að gera það fyrir leik líka. Það er bara komið í baksýnisspegilinn, við þurfum að læra og passa upp á að þetta gerist ekki aftur."

Enginn sem á fast sæti í liðinu
Viktor Örn Margeirsson verður í leikbanni á morgun. Ólafur er með þrjá öfluga miðverði í þeim Ívari Erni Árnasyni, Viktori og Ásgeiri Helga Orrasyni. Einhverjir hafa kallað eftir því að Ásgeir (2005) spili meira en hann hefur gert. Hvernig metur Ólafur samkeppnina?

„Við höfum talað um það að við séum með harða samkeppni í öllum stöðum og það er enginn sem á sæti eða eitthvað slíkt. Við metum þetta stundum út frá mótherjum, út frá því hvernig leikurinn getur litið út og hverjir henta því best. Við horfum líka í hvernig menn æfa og hvar menn standa líkamlega og annað."

„Veturinn var stuttur (fótboltalega) hjá Geira, hann var mikið frá eftir að hann brotnaði í nóvember. Það er af hinu góða að við séum með samkeppni, hver og einn einasti leikmaður þarf að vera á tánum til að halda sætinu í byrjunarliðinu og þannig viljum við hafa það. Það virkar ekki þannig að einhver eigi sæti í liðinu, menn þurfa að vinna fyrir því og sýna stöðugleika í sínum leik,"
segir Óli.
Slapp
banner